Kirkja í Fljótshlíð, þar sem fólk hittist til að syngja, biðja og heyra boðskap sem snertir daglegt líf.
Samkoma á sunnudögum. Þú ert hjartanlega velkomin
Ertu nýr hér?Kirkjulækjarkot er söfnuður Hvítasunnukirkjunnar á Íslandi í Fljótshlíð. Við viljum vera opið samfélag þar sem fólk finnur von, vináttu og rými til að vaxa í trúnni, sama hvar það er statt.
Kirkjan stendur í Fljótshlíð, austan Hvolsvallar, um 100 km frá Reykjavík, umkringd náttúru og nærsamfélagi.
Við hittumst á sunnudögum kl. 11:00. Samkoman er á íslensku og allir eru velkomnir.
Þú þarft ekki að vera skráð/ur eða kunna allt. Komdu eins og þú ert, kíktu á samkomu og sjáðu hvernig þér líður.
Þú ert hjartanlega velkomin í kirkjuna. Hvort sem þú hefur tilheyrt kirkju áður eða aldrei stigið fæti inn í eina, viljum við taka vel á móti þér. Komdu, sestu niður, syngdu með ef þú vilt, og vertu bara til staðar.
Hafa samband
Samkomur eru frekar óformlegar. Við syngjum, biðjum, heyrum predikun sem snýst um daglegt líf, og endum með tækifæri til fyrirbænar. Eftir á er kaffi og spjall.
Fyrri hluti samkomunnar er að mestu söngur. Þú mátt syngja með eða bara hlusta.
Predikunin er hagnýt og tengist daglegum veruleika. Markmiðið er að allir geti tekið eitthvað með sér heim.
Eftir samkomu er oft boðið upp á kaffi. Það er góður tími til að kynnast fólki í nærsamfélaginu.


Hér eru svör við því sem fólk spyr oftast um áður en það kemur í fyrsta skipti.
Nei. Þú mátt koma eins og þú ert. Enginn ætlast til að þú kunnir lög eða formúlur. Fyrsta skrefið er oft bara að mæta og upplifa samkomuna.
Nei. Kirkjan pressar ekki á neinn í sinni trúargöngu. Kirkjan er opin öllum og bíður alla velkomna. VIð erum til staðar fyrir þig ef þú vilt vita meira og kynnast starfinu betur.
Venjuleg samkoma er um 60 mínútur frá upphafi til enda. Eftir samkomu er kaffi og smá meðlæti.
Við viljum að fjölskyldur finni sig heima. Upplýsingar um barnastarf og það sem er í boði hverju sinni fást best með því að spyrja á staðnum eða hafa samband fyrirfram.
Komdu á sunnudagssamkomu. Ef þú vilt, sendu okkur línu fyrirfram, en það er engin skylda. Við erum ánægð að sjá þig.
Kirkjulækjarkot stendur í fallegu umhverfi í Fljótshlíð. Hér er rými til að koma saman, biðja og eiga samfélag. Við bjóðum þér að koma í heimsókn.

Á svæðinu eru einnig stærri samkomuhús í eigu hreyfingarinnar, þar sem m.a. Kotmót er haldið.
Hvort sem þú vilt spyrja um samkomu, heimsókn eða eitthvað annað, erum við til taks. Netfang og sími birtast hér um leið og þau eru staðfest.
Kirkjulækjarkot, Fljótshlíð, 861 Hvolsvöllur
